Search the Bible

Icelandic Bible

Sálmarnir 133

1 Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er, þegar bræður búa saman,
2 eins og hin ilmgóða olía á höfðinu, er rennur niður í skeggið, skegg Arons, er fellur niður á kyrtilfald hans,
3 eins og dögg af Hermonfjalli, er fellur niður á Síonfjöll. Því að þar hefir Drottinn boðið út blessun, lífi að eilífu.

Book Summary

Sálmarnir eru söngbók Biblíunnar: hundrað og fimmtíu bænir og söngvar lofgjörðar, harmljóða, þakkargjörðar og trausts, margir eignaðir Davíð. Frá djúpi örvæntingar til hæða tilbeiðslu hafa þeir borið bænir Guðs þjóðar um árþúsundir.