Search the Bible

Icelandic Bible

Sálmarnir 15

1 Davíðssálmur Drottinn, hver fær að gista í tjaldi þínu, hver fær að búa á fjallinu þínu helga?
2 Sá er fram gengur í flekkleysi og iðkar réttlæti og talar sannleik af hjarta,
3 sá er eigi talar róg með tungu sinni, eigi gjörir öðrum mein og eigi leggur náunga sínum svívirðing til;
4 sem fyrirlítur þá er illa breyta, en heiðrar þá er óttast Drottin, sá er sver sér í mein og bregður eigi af,
5 sá er eigi lánar fé sitt með okri og eigi þiggur mútur gegn saklausum _ sá er þetta gjörir, mun eigi haggast um aldur.

Book Summary

Sálmarnir eru söngbók Biblíunnar: hundrað og fimmtíu bænir og söngvar lofgjörðar, harmljóða, þakkargjörðar og trausts, margir eignaðir Davíð. Frá djúpi örvæntingar til hæða tilbeiðslu hafa þeir borið bænir Guðs þjóðar um árþúsundir.